Í gær fór fram á Hlíðavelli Texasmót GM og Dominos. Ágæt skilyrði voru í dag til golfleiks en Hlíðavöllur er að í góðu ástandi miðað við árstíma og styttist í almenna opnun inn á sumarflatir sem áætlað er að verði um næstu helgi.
Að vanda var hörð barátta um sigurinn eins og vera ber í Texas Scramble mótum. Úrslit voru sem hér segir:
Texas Scramble höggleikur m. forgjöf:
1. Pétur Pétursson og Gunnar Ingi Björnsson, 64 högg
2. Viktor Ingi Einarsson og Ingvar Andri Magnússon, 66 högg ( betri síðustu 3 )
3. Jóhann Örn Bjarkason og Arnar Geir Hjartarson, 66 högg ( betri síðustu 6 )
Nándarverðlaun:
1. Tómas Sigurðsson, GKG, 1,72m
9. Ásbjörn Jónsson, GO, 1,07m
12. Brynjar Jóhannesson, GR, 0,97m
15. Tómas Sigurðsson, GKG, 2,66m
Heildarúrslit úr mótinu má sjá hérna. Vinningshafar geta nálgast verðlaun í skálanum á Hlíðavelli frá og með laugardeginum 30. apríl eða með því að hafa samband við golfmos@golfmos.is.
GM þakkar kylfingum og Dominos kærlega fyrir og minnir á að skráning í 1. maí mót GM sem fram fer um næstu helgi er hafin á golf.is.