Úrslitin ráðast í dag í Landsmótinu í í TrackMan golfhermum – og verður sýnt frá úrslitunum í beinni útsendingu á Sportstöð hjá Sýn – og hefst útsendingin kl. 19:00.
Úrslitin fara fram í Íþróttamiðstöð GKG og hefst keppni kl. 16:00 í dag. Í þessu móti er leikið á Korpúlfsstaðavelli – (Sjórinn/Áin) sem er par 72.
Tvær undankeppnir fóru fram í vetur og var hægt að taka þátt á þeim stöðum þar sem að Trackman golfhermar eru til staðar.
Efstu 8 karlar og efstu 8 konur komust í úrslitakeppnina sem fram fer í dag og kvöld.
Hér má sjá stöðuna í karlaflokki
Hér má sjá stöðuna í kvennaflokki
Lokastaðan í kvennaflokki í síðari undankeppninni er hér:
Lokastaðan í karlaflokki í síðari undankeppninni er hér:
Landsmótið í golfhermum hefur notið vinsælda hjá kylfingum víðsvegar um landið. Leikinn er höggleikur án forgjafar í karla- og kvennaflokki. Tvær undankeppnir fóru fram í vetur.
Hægt var að taka þátt í undankeppnum hvar sem eru TrackMan golfhermar, með þeim möguleika að pútta. Stillingar mótsins tryggðu að vallaraðstæður voru eins hvar sem leikið var.
Stillingar eru fyrirfram ákveðnar og eru eins í öllum hermum. Brautir eru stilltar á mestu mýkt en flatir eru harðar með miðlungs hraða (flatir 9 fet á Stimp). Holustaðsetningar eru medium. Enginn vindur. Pútt eru hluti af leiknum og hermir því stilltur á Manual pútt. Hermir gefur pútt innan við 2,4 metra.
Leikið er af hvítum teigum í karlaflokki og bláum í kvennaflokki.
1. sæti: 130.000 kr.
2. sæti: 50.000 kr.
3. sæti: 30.000 kr.
Alls luku 153 keppendur leik í fyrri undankeppninni