/

Deildu:

Auglýsing

Golfsamband Íslands leitar að öflugum aðila í stöðu útgáfustjóra sambandsins. Um er að ræða fullt starf og er miðað við að það sé veitt frá og með 1. mars, eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni:

  • Ritstjórn og vinnsla á tímaritinu Golf á Íslandi
  • Umsjón með heimasíðu sambandsins
  • Uppsetning og skipulag fræðsluefnis fyrir GSÍ
  • Önnur útbreiðslustörf á vegum GSÍ

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Haldbær reynsla af svipuðum störfum
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
  • Mikil þekking á golfíþróttinni
  • Frumkvæði, skipulags- og samskiptahæfni

Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri GSÍ, Hörður Þorsteinsson, sem jafnframt tekur við umsóknum í netfangið, hordur@golf.is. Tekið verður á móti umsóknum til 10. febrúar n.k.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ