Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni á Akranesi endaði í 21. sæti á Investec SA Women’s Open og sem fram fór á Westlake Golf Club.
Valdís lék lokahringinn á +4 eða 76 höggum og samtals á +3 (74-69-76). Ashleigh Buhai frá Suður-Afríku sigraði á -9 samtals.
Valdís Þóra hefur tvívegis náð þriðja sætinu á LET Evrópumótaröðinni. Það er jafnframt besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu.
.@DaughterOfJon has climbed the #InvestecSAWomensOpen leaderboard into T4 position after a 2nd round 69 (-3) @WestlakeGC ?? pic.twitter.com/zpwD0kdNK9
— Ladies European Tour (@LETgolf) March 9, 2018