/

Deildu:

07/02/2018. Ladies European Tour 2018: ActewAGL Canberra Classic, Royal Canberra Golf Club, Canberra, ACT, Australia. February 9-11 2018. Valdis Jonsdottir of Iceland during the Wednesday practice round. Credit: Tristan Jones
Auglýsing

Valdís Þóra Jónsdóttir, úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, endaði í 49. sæti á Fatima Bint Mubarak Ladies Open á LET Evrópumótaröðinni sem fór fram í Abu Dhabi dagana 10.-12. janúar.

Valdís Þóra lék á +14 samtals (78-79-73). Charley Hull frá Englandi sigraði á mótinu á -8 samtals.

Staðan er uppfærð hér:

Valdís Þóra varð fyrir því óláni að farangur hennar skilaði sér ekki frá London eftir ferðalagið frá Íslandi þann 3. janúar s.l.

Hún útskýrir stöðuna í færslu á fésbókinni sem sjá má hér fyrir neðan.

Keppnisdagskrá LET Evrópumótaraðarinnar 2019 liggur nú fyrir og er hægt að nálgast allar upplýsingar um mót ársins með því að smella hér.

Fatima Bint Mubarak Ladies Open verður jafnframt fyrsta mótið á LET Evrópumótaröðinni þar sem leikið er eftir nýjum golfreglum sem tóku gildi í byrjun þessa árs.

Eftir mótið í Abu Dhabi tekur við keppnistörn í Ástralíu þar sem að þrjú mót fara fram í lok febrúar og byrjun mars. Valdís Þóra á góðar minningar frá Ástralíu en þar náði hún sínum besta árangri fyrir ári síðan – með því að enda í þriðja sæti. Þar jafnaði hún sinn besta árangur á LET Evrópumótaröðinni og er það besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á mótaröð í efsta styrkleikaflokki á atvinnumótaröð.

Eftir törnina í Ástralíu verður haldið til Suður-Afríku þar sem keppt verður um miðjan marsmánuð.

Í byrjun apríl verður nýtt keppnisfyrirkomulag á móti sem fram fer í Jórdaníu. Þar keppa konur og karlar um verðlaunaféð og sigurinn í mótinu. Þar mæta til leiks kylfingar frá LET Evrópumótaröðinni og einnig karlkylfingar frá Áskorendamótaröð Evrópu og Staysure mótaröðinni sem er mótaröð eldri kylfinga. Þar verður boðið upp á nýjungar í keppnishaldi og þar á meðal er liðakeppni.   

Í lok apríl verður sameiginlegt mót hjá LET Evrópumótaröðinni og Evrópumótaröð karla í Marokkó.

Í byrjun maí verður mót í Dubaí og þar verður m.a. keppt eftir að sólin sest en á Emirates Golf Club eru flóðljós til staðar sem lýsa upp völlinn í myrkrinu. Er þetta í fyrsta sinn sem slíkt verður reynt á LET Evrópumótaröðinni.

Fjölmörg mót fara fram í Evrópu þegar hitastigið hækkar í álfunni á vormánuðum.

Eitt mót fer fram í Taílandi um miðjan júní og í október verður leikið á Indlandi.

Lokakafli LET Evrópumótaraðarinnar fer fram á Spáni í lok nóvember.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um mót ársins með því að smella hér.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ