Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, er úr leik á ActewAGL Canberra Classic mótinu sem er hluti af sterkustu mótaröð Evrópu. Mótið fer fram á Royal Canberra vellinum í höfuðborginni Canberra. Íslandsmeistarinn 2017 var einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.
Hún lék hringina tvo á +2 samtals eða 75 og 71 höggi. Hún fékk alls þrjá fugla og einn skolla á öðrum hringnum og var hún aðeins einu höggi frá því að komast áfram.
Valdís Þóra mun leika á fjórum mótum í Ástralíu á næstu vikum og hefur hún lokið við tvö fyrstu mótin
Mótið er 54 holur og lokahringurinn fer fram aðfaranótt sunnudags.
„Völlurinn er mjög flottur, smá hæðóttur á örfáum holum en ekkert dramatískt,“ segir Valdís Þóra á fésbókarsíðu sinni.