Ladies European Tour 2018: Investec South African Women's Open, Westlake Golf Club, Valdis Jonsdottir.
Auglýsing

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er við keppni á LET Evrópumótaröðinni þessa dagana. Mótið sem Valdís Þóra hóf keppni á í nótt heitir ActewAGL Canberra Classic.

Mótið er sameiginlegt verkefni sterkustu mótaraðar Evrópu og atvinnumótaraðarinnar í Ástralíu.

Mótið fer fram rétt við höfuðborg Ástralíu á hinum þekkta velli Royal Canberra.

Staðan er uppfærð hér.

Valdís Þóra lék á +2 á fyrsta hringnum. Hún lék fyrri 9 holurnar á pari þar sem hún fékk tvo fugla (-1) og tvo skolla (+1). Á síðari 9 holunum fékk Valdís einn skramba (+2), einn skolla (+1) og einn fugl (-1).

 

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ