Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, tryggði sér í dag þáttökurétt í lokamóti úrtökumótanna fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hún komst örugglega áfram af fyrra stigi úrtökumótanna í Marokkó en þar lauk hún leik í dag.
Valdís hÞóra afnaði í 8. – 11. sæti af 78 keppendum á samtals 14 yfir pari, hún lék lokahringinn á 80 höggum en fyrstu þrjá á 76, 73 og 77 höggum.
Lokaúrtökumótið fer fram dagana 17.-21.desember í Marokkó en þar verður Íslandsmeistarinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR einnig á meðal keppenda.