Valdís Þóra Jónsdóttir endaði í 23.-26. sæti á LET Access mótaröðinni en keppni lauk í dag á Asóreyjum. Valdís lék lokahringinn á 78 höggum eða +5 og var lék hún samtals á +10 (75-73-78)
Mótið fór eins og áður segir fram á Asóreyjum sem er níu eyja eyjaklasi í miðju Norður-Atlantshafinu sem tilheyrir Portúgal. Þetta var áttunda mótið hjá Valdísi á þessari leiktíð á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Besti árangur hennar á tímabilinu er þriðja sætið.