Valdís Þóra Jónsdóttir
Auglýsing

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni fer upp um 104 sæti á heimslistanum í golfi í þessari viku. Hún endaði í þriðja sæti á móti á LET Evrópumótaröðinn sem er besti árangur sem íslenskur kylfingur hefur náð á stærstu atvinnumótaröðinni. Valdís Þóra er í sæti nr. 410 sem er besti árangur hennar frá upphafi. Á einu ári hefur Valdís Þóra farið upp um tæplega 350 sæti.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er í sæti nr. 180 en hún fer niður um eitt sæti á listanum á milli vikna. Ólafía hefur náð bestum árangri allra íslenskra kylfinga á heimslistanum en hún komst hæst í sæti nr. 179.  Á s.l. 12 mánuðum hefur Ólafía Þórunn farið úr sæti upp um rúmlega 420 sæti á heimslistanum.

Staðan á heimslistanum er gríðarlega mikilvæg fyrir stöðu keppenda fyrir Ólympíuleikana 2020 í Tokýó í Japan.

Alls komast 60 kylfingar inn á Ólympíuleikana hjá báðum kynjum eða 120 keppendur samtals. Viðamikið kvótakerfi er í gangi varðandi þátttökurétt keppenda og er það gert til þess að sem flestar þjóðir eigi möguleika á að koma keppendum inn á ÓL.

Fimmtán efstu á heimslista karla og kvenna komast sjálfkrafa inn á ÓL 2020 en aðeins fjórir geta verið frá sama landi á þeim lista. Kvóti er á fjölda keppenda frá hverri þjóð og geta aðeins tveir að hámarki verið frá sama landi í sætum 16-59 á styrkleikalistanum.

Sem dæmi má nefna að á ÓL í Ríó de Janiero í Brasilíu árið 2016 komst Cathryn Bristow frá Nýja-Sjálandi inn á ÓL. Hún var í sæti nr. 446 þegar heimslistinn var uppfærður þann 11. júlí 2016 en það var síðasti möguleiki keppenda til þess að bæta stöðu sína á heimslistanum.

Á þeim tíma voru Ólafía Þórunn og Valdís Þóra Jónsdóttir í sætum nr. 714 og 731 á heimslistanum. Ólafía var því 268 sætum frá því að komast inn og Valdís Þóra var 285 sætum frá því að komast inn á ÓL.

Miðað við stöðuna núna þá væru Valdís Þóra og Ólafía Þórunn báðar í góðri stöðu þegar kemur að því að komast inn á ÓL 2020.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ