Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er með væna forystu á sjötta stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar að loknum 36 holur af 54 . Óhætt er að segja að veðrið hafi verið í stóru hlutverki í dag enda blés hressilega á kylfingana á Garðavelli í dag.
Valdís Þóra er með níu högga forystu í kvennaflokki en hún lék hringinn í dag á 74 höggum og er sem stendur á 1 höggi yfir pari. Jafnar í öðru sæti koma þær Karen Guðnadóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur á 10 höggum yfir pari.
Hægt er að fylgjast með skori keppenda á golf.is, lokahringurinn verðu leikin á morgun.