Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, er í nærmynd á heimasíðu LET Access atvinnumótaraðarinnar í Evrópu. Mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu og mun Valdís hefja sitt þriðja tímabil á mótaröðinni í vor. Hún er að jafna sig eftir aðgerð á þumalfingri sem heppnaðist vel – en hún verður frá keppnisgolfi fram á vorið.
Viðtalið við Valdísi Þóru má lesa hér eða smella á myndina hér fyrir neðan: