Golfsamband Íslands

Veigar er Íslandsmeistari í holukeppni 2024 í piltaflokki 17-18 ára

Íslandsmót unglinga 2024 í holukeppni fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 24.-26. ágúst.

Úrslitin réðust í dag, mánudaginn 26. ágúst.

Til úrslita í piltaflokki 17-18 ára léku Veigar Heiðarsson, GA, og Valur Snær Guðmundsson, GA. Þar hafði Veigar betur 3/2.

Guðjón Frans Halldórsson, GKG og Skúli Gunnar Ágústsson, GK, léku um bronsverðlaunin þar sem að Guðjón Frans sigraði 2/1.

Öll úrslit úr þessum flokki eru hér fyrir neðan.

Frá vinstri Guðjón Frans Halldórsson GKG Veigar Heiðarsson GA og Valur Snær Guðmundsson GA

Smelltu hér fyrir úrslit leikja.

Exit mobile version