Fjórir keppendur frá Íslandi taka þátt á R&A Amateur mótinu sem er fyrir keppendur 18 ára og yngri.
Á þessu móti keppa sterkustu áhugakylfingar heims og á mótið sér langa sögu.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, keppir í stúlknaflokki. Markús Marelsson, GK, Skúli Gunnar Ágústsson, GK og Veigar Heiðarsson, GA keppa í piltaflokki.
Alls eru 288 keppendur á þessu móti, 144 í stúlknaflokki og 144 í piltaflokki.
Leikið er á tveimur völlum við borgina Leeds á Englandi.
Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur – og komast 64 efstu í holukeppnina sem tekur við eftir höggleikskeppnina.
Smelltu hér fyrir stöðunan í holukeppni pilta:
Smelltu hér fyrir stöðuna í holukeppni stúlkna:
Smelltu hér fyrir rástíma og stöðu í piltaflokki:
Smelltu hér fyrir rástíma og stöðu í stúlknaflokki:
2. keppnisdagur:
Skúli Gunnar, Veigar og Markús komast áfram í 64 manna úrslitin. Veigar og Skúli Gunnar léku hringina tvo á pari vallar samtals., Veigar á (72-70) og Skúli Gunnar á (70-72). Markús lék á 1 höggi yfir pari samtals (70-73). Þeir eru allir á meðal 15 efstu þegar þetta er skrifað en 64 efstu komast áfram í holukeppnina.
Perla Sól lék hringina tvo á +11 samtals (80-75) og var hún í 91. sæti þegar þetta er skrifað og var hún 3-4 höggum frá því að komast inn í 64 manna úrslitin.




1. keppnisdagur:
Skúli Gunnar og Markús eru jafnir í 5.-12. sæti á einu höggi undir pari vallar. Besta skorið er -3. Veigar er á +1 og er hann í 19.-25. sæti. Perla Sól lék á +8 á fyrsta hringnum og er hún 104. sæti og er hún þremur höggum frá 64. sætinu sem tryggir sæti í holukeppninni.

