Auglýsing

Íslandsmótið í golfi 2018 fer fram í Vestmannaeyjum en Golfklúbbur Vestmannaeyja fagnar 80 ára afmæli á þessu ári.

Starfsmenn GV hafa lagt mikla vinnu í því að undirbúa keppnisvöllinn fyrir stærsta golfmót ársins. Sú vinna hefur svo sannarlega skilað árangri. Undanfaranefnd Íslandsmótsins 2018 var á dögunum í skoðunarferð á Vestmannaeyjavelli.

Völlurinn er í skínandi góðu ástandi, kemur vel undan vetri og þær aðgerðir sem farið var í vetur hafa skilað árangri. Þeir kylfingar sem hafa leikið í Eyjum á undanförnum vikum eru hæstánægðir með völlinn – og er því haldið fram að ástand vallarins sé með því besta sem þekkist í Eyjum á þessum árstíma.

Vestmannaeyjavöllur skartar sínu fegursta þessa stundina og er svo sannarlega klár í slaginn fyrir Íslandsmótið 2018.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ