Dómaranefnd GSÍ boðar til vorfundar golfdómara laugardaginn 6. maí kl. 9:00. Fundurinn verður haldinn í íþróttamiðstöð GKG í Garðabæ.
Dagskrá:
- Almennir keppnisskilmálar og staðarreglur í GSÍ mótum sumarsins
- Reglugerðarbreytingar 2017
- Dómaraskýrslur
- Niðurröðun dómara í GSÍ mótum
- Nýjar golfreglur 2019
- Önnur mál
Að fundi loknum býður GSÍ til hádegisverðar í íþróttamiðstöðinni.
Allir starfandi golfdómarar eru hvattir til að mæta.
Til að auðvelda undirbúning eru þeir sem ætla að mæta á staðinn beðnir um að láta vita til domaranefnd@golf.is, jafnvel þótt þeir hafi staðfest þátttöku á Facebook síðu dómaranefndarinnar.
Kveðja,
Dómaranefnd GSÍ