Ping Jaðarsmótið á unglingamótaröð GSÍ fer fram hjá Golfklúbbi Akureyrar dagana 21.-23. júlí.
Mótið er það þriðja á tímabilinu á unglingamótaröðinni. Skráningu lýkur í kvöld, mánudaginn 17. júlí kl. 23:59.
Keppnisskilmálar – Unglingamótaröðin (3) – Jaðarsmótið
Golfklúbbur Akureyrar 21-23 júlí 2023
Keppendur fá drykk og ávöxt á fyrsta teig alla keppnisdagana.
Leikfyrirkomulag
Í flokkum 17-21 árs eru leiknar 54 holur en 36 holur í öðrum flokkum. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.
Leikfyrirkomulag
Höggleikur, 18 holur á dag. Í flokkum 17-21 árs eru leiknar 54 holur en 36 holur í öðrum flokkum. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.
Áætlaðir rástímar
Föstudagur 09:00-11:30 – Athugið: Einungis flokkar 17-21 árs
Laugardagur 08:00 – 16:00
Sunnudagur 08:00 – 16:00
Rástímar og ráshópar
Rástímar verða birtir á golf.is á miðvikudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað af handahófi á rástíma en síðan verður raðað út eftir skori.
Rásröðun
Föstudag: 17-21 árs.
Laugardagdag: 17-21 árs, 14 ára og yngri, 15-16 ára,
Laugardag: 14 ára og yngri, 15-16 ára, 17-21 árs
Rástímar og ráshópar
Rástímar verða birtir á golf.is á miðvikudeginum fyrir mót. Ræst verður út af 1. teig.
Þátttökuréttur
Hámarksforgjöf í flokki 17-21 árs kk er 15
Hámarksforgjöf í flokki 17-21 árs kvk er 25
Hámarksforgjöf í flokki 15-16 ára kk er 30
Hámarksforgjöf í flokki 15-16 ára kvk er 36
Hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kk er 30
Hámarksforgjöf í flokki 14 ára og yngri kvk er 36
Ef fjöldi skráðra fer yfir hámark í hverjum flokki miðast forgjöf kylfinga kl: 8:00 morguninn eftir að skráningarfresti lýkur hverjir fá þátttökurétt.
Ef ekki næst hámarksfjöldi í einhverjum flokki verður mótstjórn heimilt að fjölga í öðrum.
Mótsstjórn heimilt að sameina flokka ef þátttakendur í flokki eru færri en 4.
17 – 21 árs
Mest 48 keppendur
Piltar
Hvítir teigar 61
6.000,- kr
Stúlkur
Bláir teigar 52
6.000,- kr
15 – 16 ára
Mest 42 keppendur
Drengir
Gulir teigar 54
5.000,- kr
Stúlkur
Bláir teigar 52
5.000,- kr
14 ára og yngri
Mest 42 keppendur
Strákar
Bláir teigar 52
5.000,- kr
Stelpur
Rauðir teigar 45
5.000,- kr
Alls 132 keppendur
Skráning
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl. 23:59 mánudaginn 17. júlí. Engar undantekningar á skráningu í mótið verða leyfðar eftir að skráningu lýkur, þó svo laus sæti séu í mótið. Allar breytingar á skráningu í mótið ber að senda í tölvupósti á gagolf@gagolf.is. Athugið að kylfingur verður ekki afskráður úr mótinu eftir að rástímar hafa verið birtir.
Æfingahringur
Einn æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldi. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að bóka rástíma. En athugið að greiða verður mótsgjaldið áður en æfingahringur er leikinn. Athugið almennar reglur um æfingahring.
Kylfuberar
Kylfuberar eru leyfðir í flokki 14 ára og yngri en bannaðir í öðrum flokkum.
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í öllum flokkum, verðlaunapeningar ásamt golftengdum verðlaunum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti verður leikinn bráðabani en að öðru gilda móta- og keppendareglur GSÍ. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast stig og verðlaun jafnt milli þeirra keppenda.
Þeir kylfingar sem leika 54 holur (17 til 21 árs) keppa um bikar sem veittur er fyrir lægsta skorið í aldursflokknum.
Þeir kylfingar sem leika 36 holur (14 ára og yngri og 15-16 ára) keppa um bikar sem veittur er fyrir lægsta skorið í aldursflokknum.
Verðlaunaafhending
Verðlaunaafhending og lokahóf verður haldið að loknum leik hvers aldursflokks fyrir sig á lokadegi mótsins.
Mótsstjórn
Steindór K. Ragnarsson, Jón Heiðar Sigurðsson,
Dómari
Tryggvi Jóhannsson s.772-0399